Styrkir til atvinnumála kvenna

Vinnumálastofnun/velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna

vegna ársins 2016 lausa til umsóknar.

 

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

• Verkefnið sé í eigu konu/kvenna (50%) og stjórnað af konu.

• Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun

• Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar

• Viðskiptahugmynd sé vel útfærð

• Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar og gerðar

markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.

• Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna

fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma

henni í framkvæmd.

Sérstök áhersla er að styðja við þau verkefni sem eru á frumstigi þróunar og hafa ekki hlotið styrki.

 

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur

kr. 3.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000.

Umsóknarfrestur er frá 18.janúar til og með 22.febrúar og skal sækja um rafrænt á heimasíðu verkefnisins www.atvinnumalkvenna.is

 

Ennfremur má finna á síðunni nánari upplýsingar um reglur um styrkina og þau skilyrði sem þarf að uppfylla en einnig gefur starfsmaður nánari upplýsingar í síma 531-7080 eða netfangið asdis.gudmundsdottir@vmst.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?