Stólakaup í Glaumbæ

Stólakaup í Glaumbæ

Á dögunum voru keyptir nýir stólar til nota í aðstöðu Félags eldri borgara í Félagsheimilinu Hvammstanga en þau hafa gefið rýminu hið lýsandi nafn, Glaumbær. Um er að ræða vandaða staflanlega stóla sem rúmast vel í rýminu. Sem fyrr kom félagið rausnarlega að fjárfestingunni með því að greiða helming kostnaðar við kaupin. Eru félagsmönnum færðar bestu þakkir fyrir framlagið en eins og áður hefur komið fram hefur félagið stutt myndarlega við uppbyggingu aðstöðunnar með þátttöku í ýmsum kostnaði auk ómældrar vinnu við standsetningu aðstöðunnar.  Aðstaða félagsins í Félagsheimilinu er orðin öll sú glæsilegasta fyrir vikið. Kærar þakkir!

Var efnið á síðunni hjálplegt?