Umhverfissvið

Umhverfissvið

Starfsmenn Umhverfissviðs Húnaþings vestra sóttu haustfund SATS, (samtök tæknimanna hjá sveitarfélögunum) á dögunum. Mörg áhugaverð erindi voru flutt á fundinum s.s skipulags- og umhverfismál, nýjungar varðandi upplýsingar á loftmyndum, vistvæn mannvirkjagerð, hermilíkön hjá Veitum, nýsköpun í orkumálum, samgönguinnviðir, líkön og BIM.

Á myndinni eru Eyjólfur Þórarinsson Skipulagsfulltrúi Húnaþings vestra og framkvæmdastjóri Verkfræðistofunnar Stoð ehf., Benedikt Rafnsson Veitustjóri, Skúli Húnn Hilmarsson starfsmaður byggingarfulltrúa, Þorgils Magnússon Byggingarfulltrúi og Ína Björk Ársælsdóttir Umhverfisstjóri og starfsmaður skipulagsfulltrúa.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?