Starfsmann vantar í afleysingar á fjölskyldusvið Húnaþings vestra

Starfsmann vantar í afleysingar á fjölskyldusvið Húnaþings vestra.  Um er að ræða 50 – 60% skrifstofustarf í 3 - 4 mánuði í Ráðhúsinu.  Í starfinu felst almenn símsvörun, skjalavarsla og önnur störf sem yfirmaður felur viðkomandi.  


Hæfnikröfur

• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi félagsþjónustu æskileg

• Góð tölvukunnátta og vald á íslenskri tungu

• Reynsla af skjalavörslu er kostur 

• Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar 

 

Umsóknarfrestur er til 5. apríl nk.  Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.  Frekari upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri. Hægt er að senda inn umsóknir á netfangið skrifstofa@hunathing.is eða koma með í Ráðhús Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Var efnið á síðunni hjálplegt?