Starfsmaður veitna hjá Húnaþingi vestra

Starfsmaður veitna hjá Húnaþingi vestra

Húnaþing vestra óskar eftir að ráða áhugasaman, jákvæðan og úrræðagóðan vélamann í fullt starf í þjónustumiðstöð sveitarfélagsins. Viðkomandi verður starfsmaður veitna og hefur störf í ágúst skv. nánara samkomulagi og þarf einnig að sinna öðrum verkefnum hjá sveitafélaginu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Full vinnuvélaréttindi skilyrði
  • Reynsla af veitustarfssemi er kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og  skipulagshæfni.
  • Rík þjónustulund

Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og starfsgreinasambands Íslands.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Sigurjónsson, veitustjóri í síma 455-2400 og netfanginu thorsteinn@hunathing.is Umsóknum, sem skulu vera skriflegar, ber að skila á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir kl. 16:00,  þriðjudaginn 9. júlí nk. Starfsferilsskrá ásamt öðrum upplýsingum um umsækjanda skal fylgja starfsumsókn.

Sveitarstjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?