Starfsmaður óskast

Húnaþing vestra óskar eftir að ráða verkamann í fullt starf í þjónustumiðstöð (áhaldahús) sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf hið fyrsta. Laun eru greidd skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

Leitað er eftir áhugasömum og úrræðagóðum starfsmanni sem getur unnið sjálfstætt og hefur til að bera ríka þjónustulund og mikla færni í mannlegum samskiptum. Mjög æskilegt er að umsækjandi hafi vinnuvélaréttindi.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ólafur H. Stefánsson, forstöðumaður tæknideildar í síma 455-2400 og á netfanginu byggingafulltrúi@hunathing.is og Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í síma 455-2400 og á netfanginu skuli@hunathing.is.

Umsóknum, sem skulu vera skriflegar, ber að skila á skrifstofu Húnaþings vestra fyrir kl. 16:00 föstudaginn 15. febrúar nk.

Starfsferilsskrá ásamt öðrum upplýsingum um umsækjanda skal fylgja starfsumsókn.

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri.

Var efnið á síðunni hjálplegt?