Starfskraftur óskast í félagslega heimaþjónustu

Fjölskyldusvið Húnaþings vestra leitar að starfskrafti í félagslega heimaþjónustu í  sumarafleysingar og mögulega  í fasta stöðu frá september.

Um er að ræða 50% starf í heimaþjónustu á Hvammstanga og í dreifbýli. Starfið felst aðallega í því að sjá um almenn þrif í heimahúsum, fara í sendiferðir (t.d. innkaup) og veita persónulega aðstoð.

Þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og almenn kunnátta við þrif eru nauðsynleg.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands.

Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Henrike Wappler, umsjónarfélagsráðgjafa, í síma 455-2400 fyrir 24. apríl 2015.

Var efnið á síðunni hjálplegt?