Starfsfólk óskast í liðveislu með fötluðum börnum 

Starfsfólk óskast í liðveislu með fötluðum börnum 

Óskað er eftir hlýju og áreiðanlegu starfsfólki til að sinna liðveislu fyrir fötluð börn/barn þegar frístundastarf liggur niðri. Einnig kemur til greina að sinna liðveislu síðdegis.

Um starfið

Starfið felst í að veita barni stuðning og félagsskap og stuðla að ánægjulegum samverustundum. Viðfangsefni geta meðal annars verið leikur, útivera og skapandi starf, með þarfir, óskir og áhugamál hvers barns að leiðarljósi.

Leitað er að fólki sem:

  • Hefur áhuga á að vinna með börnum.

  • Sýnir hlýju, þolinmæði og virðingu.

  • Er ábyrgt, stundvíst og á gott með samskipti.

  • Getur sýnt frumkvæði og lagað sig að ólíkum þörfum.

Nánari upplýsingar veita Sigurður Þór, 8625466, siggi@hunathing.is og Henrike, 8923977, henrike@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?