Starf við Grunnskóla Húnaþings vestra.

Laust er til umsóknar tímabundið starf stuðningsfulltrúa á unglingastigi við Grunnskóla Húnaþings vestra.   Um er að ræða 75% starf fram á vor. Við leitum að áhugasömum, jákvæðum og þolinmóðum starfsmanni sem getur unnið bæði sjálfstætt og með öðrum. Í samræmi við jafnréttisáætlun Húnaþings vestra er hvatt til að karlar jafnt sem konur sæki um starfið. Umsóknum sem innihalda upplýsingar um menntun, fyrri störf og umsagnaraðila skal skila til skólastjóra sem einnig veitir nánari upplýsingar.

 

Umsóknarfrestur er til 10. mars 2014

 

Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri

sími 862-5466, netfang: siggi@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?