Starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Húnaþings vestra

Starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Húnaþings vestra

Laust er starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Húnaþings vestra til afleysingar í eitt ár.

Meðal verkefna slökkviliðsstjóra eru daglegur rekstur slökkviliðs, fræðsla og þjálfun slökkviliðsmanna, dagleg umhirða og minniháttar viðhald búnaðar, ásamt eldvarnareftirliti á starfsvæði Brunavarna Húnaþings vestra og öðru því sem til fellur innan starfssviðs samkvæmt lögum og reglugerðum sem við eiga.

Slökkviliðsstjóri gengur bakvaktir á móti varaslökkviliðsstjóra og varðstjórum eftir nánara samkomulagi. Slökkviliðsstjóri er æðsti yfirmaður slökkviliðsins og heyrir beint undir sveitarstjóra. Slökkvistöð Brunavarna Húnaþings vestra er staðsett á Hvammstanga.

Starfshlutfall er 75% auk bakvakta. Þar af er áætlað að um 25% starfsins sé akstur með eldri borgara í dagvistun.

Umsækjendur skulu uppfylla ákvæði 2.mgr. 15. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í stjórnun og hæfni í mannlegum samskiptum og aukin ökuréttindi í fl. C.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LSS og launanefndar sveitarfélaga.

Allar nánari upplýsingar um starfið veita Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir sveitarstjóri í síma 455 2400 eða Pétur Arnarsson slökkviliðsstjóri í síma 895 1995.

Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2020, og skal senda umsóknir á Húnaþing vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, merkt: “Slökkviliðsstjóri – Brunavarnir Húnaþings vestra”, eða á netfangið: rjona@hunathing.is

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?