Starf Íþrótta- og tómstundafulltrúa

Húnaþing vestra leitar að áhugasömum og framsæknum einstaklingi til að sinna starfi íþrótta- og tómstundafulltrúa. Starf íþrótta- og tómstundafulltrúa er 80% og er æskilegt að umsækjandi geti hafið störf 2. janúar nk.

Helstu verkefni:

Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra

Forstöðumaður Félagsmiðstöðvarinnar Óríon

Starfsmaður Ungmennaráðs

Vaktaskylda í íþróttamiðstöð og umsjón með félagsmiðstöð er hluti af skilgreindu starfshlutfalli.

Fulltrúi í Stýrihóp um forvarnir í Húnaþingi vestra

Önnur verkefni á sviði íþrótta og tómstundamála

Hæfniskröfur:

Menntun og/eða reynsla á sviði íþrótta- og/eða æskulýðsmála er æskileg.

Góð samskiptahæfni

Sjálfstæði og öguð vinnubrögð

Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.

Rekstrar og/eða  stjórnunarreynsla er æskileg.

Umsækjandi þarf að geta staðist hæfniskröfur sem gerðar eru til starfsmanna sundstaða.

 

Upplýsingar um starfið gefur sviðsstjóri fjölskyldusviðs Húnaþings vestra, Esther Hermannsdóttir, í síma 455-2400. Umsóknarfrestur er til 27. nóvember nk.

Umsóknum skal skilað á netfangið esther@hunathing.is eða á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

Var efnið á síðunni hjálplegt?