Starf í félagslegri heimaþjónustu

Starf í félagslegri heimaþjónustu

Fjölskyldusvið Húnaþings vestra auglýsir laust starf í félagslegri heimaþjónustu, starfshlutfall er 45% og um framtíðarstarf er að ræða.

Heimaþjónusta fer fram á heimilum aldraðra einstaklinga, öryrkja eða fjölskyldna. Auk venjubundinna heimilisverka og ræstinga er gert ráð fyrir innkaupaferðum fyrir skjólstæðinga svo og félagslegum stuðningi að einhverju leyti.

Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með öldruðum einstaklingum, er góður í mannlegum samskiptum og hefur reynslu og þekkingu á heimilisverkum/ræstingum. Í starfinu er lögð áhersla á gagnkvæma virðingu, háttsemi og stundvísi. Umsækjandi skal hafa náð 18 ára aldri, hafa góða íslenskukunnáttu, þarf að vera með bílpróf og hafa bíl til umráða og geta byrjað sem fyrst.

Upplýsingar um starfið veitir Henrike Wappler, félagsráðgjafi í síma 455 2400 eða henrike@hunathing.is. Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2022 og umsóknir berist á netfangið henrike@hunathing.is.

Var efnið á síðunni hjálplegt?