Staða búfjáreftirlitsmanns Húnaþing vestra laus til umsóknar

Mynd: Kristrún Ásta Arnfinnsdóttir
Mynd: Kristrún Ásta Arnfinnsdóttir

Búfjareftirlitsmaður annast eftirlit með lausagöngu búfjár í Húnaþingi vestra þar sem lausaganga búfjár hefur verið bönnuð.   Um er að ræða vegsvæði Hringvegar / þjóðvegar 1, Hvammstangavegar nr. 72 og hluta Miðfjarðarvegar nr. 704 þ.e. norðan þéttbýlis á Laugarbakka. 

Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til  og með 31. desember nk.   Stefnt skal að því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.  Umsóknir skulu vera skriflegar.   Nánari upplýsingar fást hjá sveitarstjóra í síma 455-2400, netfang gudny@hunathing.is

Sveitarstjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?