Söfnun jólatrjáa 2022

Söfnun jólatrjáa 2022

Íbúar á Hvammstanga og Laugarbakka athugið:

Starfsmenn þjónustumiðstöðvar verða á ferðinni föstudaginn 7. janúar og mánudaginn 10. janúar til að hirða upp jólatré sem lokið hafa hlutverki sínu þessi jólin.

Koma þarf jólatrjánum fyrir, úti við lóðamörk

Bendum á að einnig er hægt að koma trjánum í Hirðu á almennum opnunartímum á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 14:00-17:00 eða á laugardögum frá klukkan 11:00-15:00

Þeir íbúar sem vilja nýta sér þjónustuna þurfa að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455-2400 eða Sigurð Björn Gunnlaugsson starfsmann þjónustumiðstöðvar í síma 899-8918

Einnig er hægt senda tölvupóst á skrifstofa@hunathing.is.

Var efnið á síðunni hjálplegt?