Söfnun á rúlluplasti í Húnaþingi vestra í nóvember 2026

Söfnun á rúlluplasti í Húnaþingi vestra í nóvember 2026

Söfnun rúlluplasts fer fram dagana 11. - 13. nóvember, 2026. Áætlað er að byrja plastsöfnun í gamla Bæjarhreppi.

  • Plastið skal vera hreint og laust við aðskotahluti.
  • Best er að setja plastið í stórsekki og afhenda þannig (ný aðferð við plastsöfnun).
  • Svart plast verður að flokka sér.

Taka skal fram að söfnunaraðila ekki heimilt að fara inn í húsnæði bænda og því skal plastið vera tilbúið á plani og aðgengilegt tækjum söfnunaraðila.

Allir bændur sem vilja láta sækja til sín rúlluplast, þurfa að tilkynna það til skrifstofu Húnaþings í síma 455-2400, eða á netfangið: skrifstofa@hunathing.is, fyrir lok dags 10. nóvember.

Frekari upplýsingar gefa starfsmenn Terra hf.

Var efnið á síðunni hjálplegt?