Söfnun á rúlluplasti í Húnaþingi vestra í apríl 2026

Söfnun á rúlluplasti í Húnaþingi vestra í apríl 2026

Áætlað er að söfnun rúlluplasts fari fram dagana 13.-17. apríl 2026 og áætlað er að byrja plastsöfnun í gamla Bæjarhreppi.

Þeir bændur sem vilja EKKI láta taka hjá sér rúlluplast tilkynni það til skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400, eða á netfangið: skrifstofa@hunathing.is, sem fyrst.

Svo að plastið sé hæft til endurvinnslu þá er mjög áríðandi að plastið sé hreint og laust við aðskotahluti. Svart plast verður að flokka sér.

Það skal ítrekað að nú er söfnunaraðila ekki heimilt að fara inn í húsnæði bænda og við viljum árétta að plastið skal vera tilbúið á plani, aðgengilegt tækjum söfnunaraðila.

Frekari upplýsingar gefa starfsmenn Terra hf.

Var efnið á síðunni hjálplegt?