Söfnun á rúlluplasti í Húnaþingi vestra

Söfnun á rúlluplasti í Húnaþingi vestra

Söfnun á rúlluplasti í Húnaþingi vestra

Áætlað er að söfnun á rúlluplasti fari fram vikuna 21.-25. júní nk. skv. sorphirðudagatali. Þeir bændur sem óska eftir því að nýta sér þjónustuna vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400, eða á netfangið: skrifstofa@hunathing.is, sem fyrst og fyrir 18. júní nk.

Söfnunin kemur til með að hefjast í Hrútafirði og fikrast til austurs fram eftir vikunni eins og áður.

Það er mjög áríðandi að plastið sé hreint og laust við aðskotahluti.

Ef um svart landbúnaðarplast er að ræða þá verður að halda því sér og bagga sér, þá er hægt að taka það með öðru plasti. Svart plast fer í annan endurvinnslufarveg en hvítt plast.

Var efnið á síðunni hjálplegt?