Söfnun á rúlluplasti

Söfnun á rúlluplasti
Áætlað er að söfnun á rúlluplasti fari fram vikuna 8. - 12. júlí nk. Þeir bændur sem óska eftir því að nýta sér þjónustuna vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400, eða á netfangið: skrifstofa@hunathing.is,  fyrir 5. júlí nk.
Söfnunin kemur til með að hefjast í Hrútafirði  og fikrast til austurs fram eftir vikunni eins og áður.
Frekari upplýsingar gefa starfsmenn Gámaþjónustunnar í síma: 452 2958 
 
 
Var efnið á síðunni hjálplegt?