Söfnun á rúlluplasti

Söfnun á rúlluplasti

Áætlað er að söfnun á rúlluplasti fari fram í Húnaþingi vestra vikuna 21.-25. ágúst nk. Þeir bændur sem óska eftir því að nýta sér þjónustuna vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400, eða á netfangið: skrifstofa@hunathing.is,  fyrir 15. ágúst nk.

 Einnig verður tekið á móti áburðarpokum í sömu ferð, taka þarf innri pokana úr og hafa þá sér.

 

Mikilvægt er þó að halda Heyrúlluplasti og áburðarpokum aðskildum og vel pökkuðum. T.d. má fylla áburðarpoka með hreinum áburðarpokum og loka fyrir. Plastið verður að vera bundið  saman til að minnka rúmmálið sem mest.

 

Söfnunin kemur til með að hefjast í Hrútafirði (fyrrum Bæjarhreppi)  og fikrast til austurs fram eftir vikunni eins og áður.

 

Frekari upplýsingar hjá Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar ehf.

Var efnið á síðunni hjálplegt?