Söfnun á rúlluplasti

Söfnun á rúlluplasti

Áætlað er að söfnun á rúlluplasti fari fram vikuna 28. nóvember – 2. desember n.k. Þeir bændur sem óska eftir því að nýta sér þjónustuna vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400, eða í tölvupósti á: skrifstofa@hunathing.isfyrir 25. nóvember  nk.

Söfnunin kemur til með að hefjast í Hrútafirði  og fikrast til austurs fram eftir vikunni. 

Í upplýsingahandbók sem dreift verður á öll heimili í sveitarfélaginu er gerð ítarleg grein fyrir flokkun og frágangi á landbúnaðarplasti. Handbókin er einnig á rafrænu formi á forsíðu heimasíðu Húnaþings vestra.

plast1.JPGplast2.JPG

Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar í samstarfi við Húnaþing vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?