Skráning í vinnuskóla sumarið 2025 - framlengdur umsóknarfrestur til 18. maí

Skráning í vinnuskóla sumarið 2025 - framlengdur umsóknarfrestur til 18. maí

Vinnuskóli Húnaþings vestra 2025 stendur til boða fyrir 13-17 ára ungmenni sem lögheimili hafa í Húnaþingi vestra eða eiga foreldri með lögheimili í sveitarfélaginu.

Vinnutími er frá klukkan 8:30-12:00 árdegis og 13:00-16:00 síðdegis, frá mánudegi til fimmtudags, á föstudögum lýkur vinnu kl. 12:00.
Nánari upplýsingar um vinnuskólann er að finna HÉR

Var efnið á síðunni hjálplegt?