Skólaakstur í Húnaþingi vestra

Útboð

Sveitarstjórn Húnaþings vestra kt. 540598-2829, Hvammstangabraut 5, Hvammstanga, leitar hér með eftir tilboðum í akstur grunnskólabarna í Húnaþingi vestra.  Boðinn er út samningur um skólaakstur fyrir skólaárin 2015/2016 til 2018/2019.

Útboðsgögn liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins og eru afhent gegn 1000 kr. greiðslu.  Gögnin má einnig nálgast  hér.

Í útboðsgögnum er skilgreint það aksturskerfi sem áætlað er að aka eftir á skólaárinu 2015-2016, ásamt búsetu nemenda og vegalengdu á hverri leið.  Tilboð má gera í heildarakstur eða einstaka leiðir, eina eða fleiri.

Tilboðum ásamt sakavottorði þess sem tilboðið gerir skal skila á skrifstofu Húnaþings vestra eigi síðar en kl. 11:00, 5. maí 2015 og verða tilboðin þá opnuð.  Bjóðendum er heimilt að vera viðstaddir.  Sveitarstjórn áskilur sér allt að 15 daga frest til að vinna úr tilboðunum. Einnig áskilur sveitarstjórn sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Húnaþingi vestra, 21. apríl 2015.
Skólastjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?