Skipulagslýsing- Hvítserkur

Skipulagslýsing- Hvítserkur

Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 8. desember 2022 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir deiliskipulag í kring um Hvítserk skv. skipulagslögum nr. 123/2010.

 

Skipulagslýsing sem um ræðir er 3.6 ha. að stærð og er staðsett í vestanverðum botni Húnafjarðar, í Húnaþingi vestra. Mótað verður framtíðarsýn og lagt fram stefna um svæðið m.a. að standa vörð um merkar náttúru- og söguminjar, kortleggja og skilgreina gönguleiðakerfi og stuðla að betra aðgengi almennings á svæðinu.

 

Skipulagslýsing fyrir deiliskipulagstillöguna er ekki matsskylt samkvæmt reglugerð 66/2015 um mat á umhverfisáhrifum og í samræmi við aðalskipulag Húnaþings vestra 2014-2026.

 

Opið hús verður í ráðhúsi Húnaþings vestra föstudaginn 9. janúar 2023 frá kl. 10:00-12:00.

Skipulagslýsinguna má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins hunathing.is

 

Frestur til að skila inn ábendingum rennur út 20. janúar 2023 og skal þeim skilað á netfangið skipulagsfulltrui@hunathing.is eða með bréfapósti stílað á skipulagsfulltrúa Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.

 

 

Bogi Kristinsson Magnusen

Skipulagsfulltrúi Húnaþings vestra,

Húnabyggðar og Skagabyggðar.

Var efnið á síðunni hjálplegt?