Skipakomur í Hvammstangahöfn

Skipakomur í Hvammstangahöfn

Norska leiðangursskipið Sjovejen liggur nú við bryggju í Hvammstangahöfn. Skipið er 331 brúttótonn og er hér til að taka upp farþega á leið í fjögurra daga siglingu til Grænlands á vegum franskrar ferðaskrifstofu. Rúmar það 12 farþega. 

Skipið mun hafa þrjár viðkomur í höfninni í febrúar og mars.

Við bjóðum Sjovejen, áhöfn þess og gesti, velkomin til hafnar á Hvammstanga.

Var efnið á síðunni hjálplegt?