Sigur í Skólahreysti

Keppendur og þjálfarar ásamt stuðningsmönnum.
Keppendur og þjálfarar ásamt stuðningsmönnum.

Keppnislið Grunnskóla Húnaþings vestra í Skólahreysti gerði sér lítið fyrir og fór með sigur af hólmi í keppninni. Fékk liðið 60 stig á meðan liðin í 2. og 3. sæti fengu 54 stig. Árangur Grunnskólans í Skólahreysti hefur verið aðdáunarverður í gegnum árin en þetta er í fyrsta skiptið sem lið hans sigrar keppnina.

Liðið skipuðu þau Hafþór Ingi Sigurðsson sem keppti í upphífingum og dýfum, Jóhanna Guðrún Jóhannsdóttir sem keppti í hreystigreip og armbeygjum, Inga Lena Apel Ingadóttir sem keppti í hraðaþraut og Helgi Freyr Guðmundsson sem skráður var til leiks í hraðaþrautina. Helgi varð fyrir því óhappi að meiðast í upphitun og hljóp Guðni Þór Alfreðsson varamaður í skarðið í hraðaþrautinni í keppninni. Aníta Rós Brynjarsdóttir var einnig varamaður í liðinu. 

Þjálfarar liðsins voru sem fyrr Magnús Vignir Eðvaldsson og Sara Ólafsdóttir.

Með miklu stolti óskum við keppendum og þjálfurum til hamingju með sigurinn og vonum að Helgi Freyr verði fljótur að jafna sig á meiðslunum. 

Var efnið á síðunni hjálplegt?