Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna námsmanna haustið 2019

Húnaþing vestra greiðir sérstakan húsnæðisstuðning vegna námsmanna en sækja þarf um hann núna vegna haustannar 2019.

Stuðningur er annars vegar ætlaður foreldrum/forsjáraðilum 15 -17 ára barna sem búa á heimavist eða námsgörðum.  Hins vegar er stuðningur ætlaður námsmönnum (18 – 20 ára) á framhaldsskólastigi sem leigja stök herbergi á almennum markaði ef umsókn þeirra um heimavist eða búsetu á nemendagörðum hefur verið hafnað.

Umsóknarblað má nálgast hér og reglur má sjá hér

 Nánari upplýsingar veitir Henrike Wappler, félagsráðgjafi.

Bent er á að námsmenn 18 ára og eldri sem leigja herbergi á heimavist eða íbúð á námsgörðum eða almennum markaði þurfa að sækja um til Íbúðalánasjóðs á heimasíðu www.husbot.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?