Sérstakur húsnæðisstuðningur

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Húnaþing vestra veitir eftirfarandi stuðning í húsnæðismálum með hliðsjón af aðstæðum hvers og eins:

  1. Sérstakar húsaleigubætur (í viðbót við almennar húsnæðisbætur hjá HMS)
  2. Stuðning vegna barna 15-17 ára sem leigja á heimavist/námsgörðum
  3. Stuðning vegna námsmanna 18-20 ára sem ekki fá inni á heimavist eða námsgörðum.
  4. Lán vegna fyrirframgreiðslu húsaleigu og/eða tryggingar.

Endurnýja þarf eldri umsóknir fyrir hvert almanaksár en umsóknir námsmanna eru háð staðfestingu skólans fyrir hverja önn. Bent er á að senda umsókn vegna haustannar inn sem fyrst þó enn vantar gögn þar sem greitt verður frá dagsetningu umsóknar þegar öllum gögnum hefur verið skilað.

Reglur eru að finna á heimasíðu og umsóknarform er inn á íbúagátt Húnaþings vestra www.hunathing.is.

Nánari upplýsingar og aðstoð veitir Henrike Wappler, félagsráðgjafi.

Umsóknir um almennar húsnæðisbætur sendast til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar á heimasíðu www.hms.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?