Samstarf um frístunda- og íþróttadagskrá fyrir börn í Húnaþingi vestra

Samstarf um frístunda- og íþróttadagskrá fyrir börn í Húnaþingi vestra
Kormákur og Húnaþing vestra hafa tekið höndum saman um að efla frístunda- og íþróttastarf fyrir börn í 1.–7. bekk á komandi sumri. Markmið samstarfsins er að bjóða upp á fjölbreytta, skemmtilega og aðgengilega dagskrá sem mætir ólíkum áhugasviðum barna og styður við virka þátttöku þeirra.
 
Í sumar verður íþróttastarf samþætt við sumardagskrá Krakkasveiflunnar, þar sem börn fá tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar og reglulegar æfingar samhliða annarri afþreyingu og skapandi starfi. Með þessu er leitast við að auka hreyfingu, félagsfærni og vellíðan barna í öruggu og uppbyggilegu umhverfi.
 
Fyrir þau börn sem kjósa að taka eingöngu þátt í íþróttaæfingum verður áfram boðið upp á sérstaka skráningu í æfingar Kormáks, óháð þátttöku í Krakkasveiflunni. Þannig geta öll börn fundið þátttökuform sem hentar áhuga þeirra og þörfum.
Nýbreytni í sumar er að dagskránni verður skipt upp eftir aldri. Börn í 1.–4. bekk fá sérstaka dagskrá sem tekur mið af þeirra þroska og áhugasviði, á meðan eldri hópurinn, 5.–7. bekkur, fær aðgang að sérsniðnu starfi með aukinni áherslu á sjálfstæði, áskoranir og fjölbreyttari verkefni.
 
Aðstandendur samstarfsins leggja áherslu á að með þessu sé stigið mikilvægt skref í átt að heildstæðara og markvissara frístundastarfi í sveitarfélaginu í samræmi við markmið um barnvænt og heilsueflandi samfélag í anda laga um farsæld barna. Samstarfið styrkir tengsl milli íþrótta- og frístundastarfs og skapar fleiri tækifæri fyrir börn til að njóta sumarsins í leik og starfi.
 
Nánari upplýsingar um skráningu og dagskrá verða kynntar í apríl.
 
Fjölskyldusvið Húnaþings vestra og Ungmennafélagið Kormákur
Var efnið á síðunni hjálplegt?