Rotþróarlosun 2026

Rotþróarlosun 2026

Húnaþing vestra gerði í vor samning við Verkval ehf. um tæmingu rotþróa. Verkval mun því sjá um þessar tæmingar í sveitarfélaginu. Skipulagið er það sama og áður, losaðar verða rotþrær á þriggja ára fresti þar sem sveitarfélaginu er skipt upp í þrjú svæði. Svæðin eru eftirfarandi: 1. Vatnsnes og Vesturhóp, 2. Víðidalur og fyrrum Bæjarhreppur 3. Hrútafjörður og Miðfjörður.

Á næstu dögum verða rotþrær tæmdar á svæði 1. sem er Vatnsnes og Vesturhóp. Eigendur jarða og húsnæðis sem tengd eru rotþróm á þessu svæði ásamt árlegu losunarstöðunum, eru beðnir um að gæta að aðgengi að rotþróm sínum og hafa þær sýnilegar s.s. með því að rífa burt gróður, athuga aðkeyrslu, hafa hlið ólæst og þess háttar. 

Sveitarfélagið er að byrja notkun á Seyru sem sýnir rotþær og upplýsingar um þær. Enn er verið að setja inn allar rotþrær sveitarfélagsins. Inn á Seyrunni mun síðan vera hægt að sjá upplýsingar um hvenær þær voru tæmdar og hvort þurfi að bæta aðgengi að eða gera við rotþrær.

Var efnið á síðunni hjálplegt?