Rjúpnaveiði 2021

Rjúpnaveiði 2021

Fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2021:

Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða tvennskonar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði. Kort af svæðunum má sjá á heimasíðu Húnaþings vestra www.hunathing.is

Rjúpnasvæði í landi Húnaþings vestra má sjá HÉR:

Svæði 1 - Vesturhluti Víðidalstunguheiðar, lönd Stóra Hvarfs, Stóru Hlíðar og Öxnartungu. Sjá kort HÉR.

Svæði 2 - Eingarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru: Núpsheiði, Aðalbólsheiði, Lækjarbæjar, Fosskot og Þverá. Sjá kort HÉR

Svæði 3 - Gafl og Lækjarkot. Sjá kort HÉR

Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2021 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

Veiðileyfin verða til sölu hjá Ferðaþjónustunni Dæli. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.500 á dag.

Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag en 5 byssur á svæði 2 og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.

Sveitarstjóri

 

Rjúpnaveiði í Víðidal

Rjúpnaveiði í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots í Víðidal verður eins og undanfarin haust takmörkuð.

  • Frá 1. – 8. nóvember eru seld leyfi í eignarland Húnaþings vestra í Gafli sunnan Gaflsgjár, og Lækjarkots, 4 byssur á dag.
  • Frá 9. – 30. nóvember eru seld leyfi í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða þrjár byssur á dag, Gafls og Lækjarkots fjórar byssur á dag alls 7 byssur á dag.

Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.500 á dag. Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli sími 451 2566. Þar verður líka tilboð á gistingu á rjúpnaveiðitímanum. Netfangið er daeli@daeli.is. Allar upplýsingar um rjúpnaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.

Landeigendur

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?