Rjúpnaveiði 2016

Rjúpnaveiði 2016

Fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2016:

  1. Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða tvennskonar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði.

Svæðin eru:   1. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum; Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi  og Öxnatungu.

2. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

2. Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2016. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma.

3.Veiðileyfin verða til sölu hjá Ferðaþjónustunni Dæli. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.

4.Fjöldi veiðimanna á veiðisvæðin er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum.   Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

5.Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.

Kort af veiðisvæðum:

Rjúpnaveiðisvæði 1 - Víðidalstunguheiði

Rjúpnaveiðisvæði 2 - Arnarvatnsheiði og Tvídægra

Rjúpnaveiðisvæði 3 - Gafl

Sveitarstjóri

 

Rjúpnaveiði í Víðidal

Rjúpnaveiði í löndum Gafls og Lækjarkots í Víðidal verður eins og undanfarin haust takmörkuð. Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli sími 451 2566. Þar verður líka tilboð á gistingu á rjúpnaveiðitímanum. Netfangið er daeli@daeli.is. Allar upplýsingar um rjúpnaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.

Rjúpnaveiði í landi Syðra-Kolugils og Hrappstaða

Landeigendur Syðra-Kolugils og Hrappsstaða leyfa engar veiðar í sínum löndum í ár.

 

Landeigendur

   

 

 

 

 

 

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?