Rjúpnaveiði 2015

Fyrirkomulag rjúpnaveiða á afréttarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2015:

  1. Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða á afréttarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða tvennskonar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði.

    Svæðin eru:   1. Víðidalstunguheiði ásamt Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi  og                               

                                 Öxnatungu.
                            2. Arnarvatnsheiði og Tvídægra.

  2. Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2015 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Ekki er um að ræða sölu á dagsleyfum.

  3. Veiðileyfin verða til sölu á skrifstofu Húnaþings vestra á Hvammstanga, hjá Ferðaþjónustunni Dæli og Söluskálanum Hvammstanga. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000-

  4. Fjöldi veiðimanna á veiðisvæðin verður ekki takmarkaður, en tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að benda þeim er fara á veiðisvæði án leyfis á að nærveru þeirra sé ekki óskað á veiðisvæðinu. Veiðimenn eru einnig hvattir til að tilkynna slík tilfelli til skrifstofu Húnaþings vestra.

  5. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.

Sveitarstjóri

 

Rjúpnaveiði í Víðidal

Rjúpnaveiði í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots í Víðidal verður eins og undanfarin haust takmörkuð. Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli sími 451 2566. Þar verður líka tilboð á gistingu á rjúpnaveiðitímanum. Netfangið er daeli@daeli.is. Allar upplýsingar um rjúpnaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.

 

Landeigendur

Var efnið á síðunni hjálplegt?