RARIK: Bætur vegna tjóns á búnaði og keyrslu varaaflsvéla

RARIK: Bætur vegna tjóns á búnaði og keyrslu varaaflsvéla

RARIK mun koma til móts við þá viðskiptavini sem urðu fyrir rafmagnsleysi í hinu fordæmalausa illviðri sem brast á 10. desember 2019.

Á vefsíðu RARIK  www.rarik.is  er hægt að sækja um bætur vegna tjóns á búnaði og keyrslu varaaflsvéla. 

Bætur vegna keyrslu varaaflsvéla

Ýmsir hafa orðið fyrir kostnaði vegna olíu- og gasnotkunar við framleiðslu á rafmagni eða við upphitun. Hægt er að sækja um endurgreiðslu á þeim kostnaði með því að fylla út eyðublað á vefsíðu RARIK. 

Bætur vegna tjóns á búnaði

Venju samkvæmt bætir RARIK tjón á rafbúnaði viðskiptavina sem verður vegna spennusveiflna í rafmagnstruflunum. Þeir sem hafa orðið fyrir slíku geta fyllt út kvörtunareyðublað á vefsíðu RARIK.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?