Rangir hitaveitureikningar - verið að laga

Rangir hitaveitureikningar - verið að laga

Tilkynning vegna rangra reikninga frá Hitaveitu Húnaþings vestra

Vegna mistaka við reikningagerð voru rangir reikningar frá Hitaveitu Húnaþings vestra, dagsettir 30. september 2026, birtir á Ísland.is.

Reikningarnir verða bakfærðir og nýir, leiðréttir reikningar gefnir út með dagsetningunni 31. október 2026.

Rétt er að taka fram að engar greiðslukröfur hafa verið sendar út vegna umræddra reikninga og því þurfa viðskiptavinir ekki að grípa til neinna aðgerða.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.

Húnaþing vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?