Rafbókasafnið komið í Húnaþing vestra

Rafbókasafnið komið í Húnaþing vestra

Bókasafn Húnaþings vestra hefur hafið útlán á raf- og hljóðbókum í samvinnu við Landskerfi bókasafna. Með þessari nýjung geta notendur bókasafnsins nálgast fjölda titla hljóð- og rafbóka á auðveldari hátt en hingað til. Fyrst um sinn verða bækurnar aðallega á ensku en vonast er til þess að íslenskir titlar bætist fljótlega við.

Það eina sem þarf til að nálgast efni af rafbokasafninu er að vera skráður notandi á bókasafninu og fá notendanúmer og lykilorð til að nota á heimasíðu rafbókasafnsins. Hægt verður að nálgast efnið í flestum tækjum svo sem í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum. Auk þess er efnið jafnframt aðgengilegt í gegnum sérstakt app, OverDrive sem finna má í App Store og Play Store.    

Þjónustan er veitt í gegnum OverDrive rafbókaveituna og er gjaldfrjáls fyrir skráða notendur á bókasafni Húnaþings vestra. Slóðin að Rafbókasafninu er:  rafbokasafnid.is .

Einnig má finna efni Rafbókasafnsins á leitir.is.

 

Leiðbeiningar um notkun Rafbókasafnsins

  • Til þess að tengjast Rafbókasafninu með snjallsímatæki byrjar þú á því að sækja app-ið OverDrive.
  • Þú þarft netendanúmer og lykilorð. Það færð þú á Bókasafni Húnaþings vestra.
  • Þú skráir þig inn á Rafbókasafnið með notendanúmeri (byrjar á GE) og lykilorði.
  • Þú getur valið hvort þú færð bók að láni í 7, 14 eða 21 dag.
  • Þú getur haft 5 bækur að láni í einu og sett inn 7 frátektir.
  • Bók sem hefur verið tekin að láni skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum. Auðvitað er líka hægt að skila fyrr.
  • Hægt er að lesa rafbækur eða hlusta á hljóðbækur frá Rafbókasafninu í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum og því er ekki nauðsynlegt að hlaða niður neinum forritum til þess.
  • Viljir þú lesa eða hlusta án þess að vera nettengd(ur) þarftu að ná þér í Libby appið, OverDrive appið eða Adobe Digital Editions forritið og hlaða bókinni niður.

 

 

OverDrive appið

OverDrive appið er fáanlegt fyrir iPhone®, iPad®, Android, Chromebook, Windows Phone, Windows 8 & 10, Kindle Fire HD og má nálgast t.d. í veiðeigandi veitum svo sem Play Store og App Store.  Lesa má nánar um appið og sækja það á  http://app.overdrive.com/.

 

Lesbretti

Hægt er að lesa bækur Rafbókasafnsins á þeim lesbrettum sem notast við ePub formið.  Þetta eru flestar gerðir lesbretta aðrar en Kindle.  Ekki er hægt að lesa bækur Rafbókasafnsins í Kindle lesbrettum að Kindle Fire undanskildu.

  • Ef ætlunin er að lesa rafbók á lesbretti þarf að stofna Adobe ID-aðgang og hlaða niður Adobe Digital Editions forritinu á tölvu.
  • Bókinni er svo hlaðið niður í Adobe Digital Editions og færð þaðan yfir á lesbrettið.

Var efnið á síðunni hjálplegt?