Ráðning sviðsstjóra Framkvæmda og umhverfissviðs í Húnaþingi vestra

Úlfar Trausti Þórðarson hefur verið ráðinn í starf sviðsstjóra Framkvæmda- og umhverfissviðs Húnaþings vestra frá og með 1. september nk.  Úlfar Trausti er Byggingarfræðingur B. Sc. að mennt og hefur starfað fyrir Fljótsdalshérað sl. 7 ár þar af sem byggingarfulltrúi árin 2008 – 2011.  Hann er kvæntur Halldóru Tómasdóttur framhaldsskólakennara og ritstjóra og eiga þau þrjú börn.

 

Guðný Hrund Karlsdóttir,

sveitarstjóri.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?