Pílukastaðstaða í félagsmiðstöðinni Órion

Pílukastaðstaða í félagsmiðstöðinni Órion

Viðbót við aðstöðu í Órion.

Fyrir stuttu var sett upp aðstaða fyrir píluiðkun fyrir ungmenni í félagsmiðstöðinni Órion. Pílan leysir af hólmi aðstöðuna fyrir rafíþróttir, sem núna er komin í stórglæsilegt tölvurými á neðri hæð Félagsheimilisins.

Klúbbastarf blómstrar á meðal ungmenna á Hvammstanga og frábært að geta bætt pílunni inn í framboðið með þessari flottu aðstöðu í Órion.

 

 

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?