Pílufélagið í Félagsheimilið

Unnur Valborg sveitarstjóri og Patrekur Óli formaður stjórnar Pílufélags Hvammstanga greinilega sátt…
Unnur Valborg sveitarstjóri og Patrekur Óli formaður stjórnar Pílufélags Hvammstanga greinilega sátt með samninginn.

Pílufélag Hvammstanga og Húnaþing vestra hafa gert samning til reynslu í 6 mánuði um afnot félagsins af sal á neðri hæð Félagsheimilisins Hvammstanga. Félagið var stofnað á síðasta ári og hefur staðið fyrir öflugu starfi síðan. Félagið hefur komið sér upp góðum búnaði til iðkunar íþróttarinnar. Fastar æfingar eru tvisvar í viku en félagið stendur jafnframt fyrir reglulegum mótum. 

Við bjóðum félagið velkomið í Félagsheimilið.

Var efnið á síðunni hjálplegt?