Óvissuferð í Húnaþingi vestra á sjónvarpsstöðinni N4

Fimmtudaginn 25. september n.k. frumsýnir sjónvarpsstöðin N4 þáttaröðina „Óvissuferð í Húnaþingi vestra“, en þar er um að ræða nýja íslenska sjónvarpsþáttaröð fulla af fjöri í fallegu umhverfi. 

Í hverjum þætti glíma þrjú pör við hinar ýmsu þrautir, þar til eitt par stendur uppi sem sigurvegari. 

Upptökur fóru fram í sumar í Húnaþingi vestra. Þættirnir eru átta talsins og verða sýndir á N4 á fimmtudögum kl. 18:30 frá og með 25. september n.k. 
 
Kynningu á þáttunum má sjá hér
Var efnið á síðunni hjálplegt?