Óskað eftir: Stuðningi í vinnuskóla sumarið 2024

Óskað eftir: Stuðningi í vinnuskóla sumarið 2024

Húnaþing vestra leitar sérstaklega eftir öflugum starfsmanni til að starfa í sértæku stuðningsúrræði samhliða vinnuskóla ungmenna sumarið 2024.

Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður þar sem fram fer kennsla í almennri vinnuskólavinnu. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að hirðingu opinna svæða og stofnanalóða sveitarfélagsins. Starfsmaður hefur mikil tækifæri til að móta sértækt stuðningsúrræði.

 

Í þessu starfi felst mótun stuðningsúrræðis eftir þörfum og áhugasviði sem felur í sér vinnu, tómstundir, starfakynningar, ferðir o.fl. Starfstíminn er 6 vikur, á tímabilinu 6. júní – 17. júlí með möguleika á lengri tíma yfir sumarið. Um er að ræða 100% starf eða minna.

 

Hæfniskröfur:

  • Æskilegt er að umsækjendur séu 18 ára og eldri.
  • Reynsla af störfum með börnum og ungmennum er æskileg.
  • Reynsla af stuðningi við einstaklinga er æskileg.
  • Stundvísi og góð mæting skilyrði.
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum eru mikilvæg.
  • Hreint sakavottorð skilyrði.

 

Vinnutímabil: a.m.k. 6 vikur en í boði er vinna 1. júní – 31. ágúst, þá við fjölbreyttari vinnuskólaverk í bland við stuðning. Daglegur vinnutími er 8 klst. frá kl. 8:00-12:00 og 12:30-16:00.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stéttarfélagsins Samstöðu.

Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2024.

 

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila inn með rafrænum hætti. Umsóknareyðublað er að finna HÉR.

Var efnið á síðunni hjálplegt?