Óskað eftir: Flokksstjórum vinnuskólans fyrir sumarið 2024

Óskað eftir: Flokksstjórum vinnuskólans fyrir sumarið 2024

Húnaþing vestra leitar að öflugum leiðtogum í vinnuskóla ungmenna sumarið 2024.

Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður þar sem fram fer kennsla í almennri vinnuskólavinnu. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að hirðingu opinna svæða og stofnanalóða sveitarfélagsins.

Í starfinu felst umsjón með vinnuhópum ungmenna á aldrinum 13-16 ára annars vegar og 16-17 ára ungmennum í sláttuhópi hins vegar. Meðal verkefna er að kenna ungmennum vönduð vinnubrögð, bera ábyrgð á tímaskráningum þeirra sem og að tryggja öryggi sitt og ungmenna við störf. Yfirflokkstjóri hefur yfirumsjón með öðrum flokkstjórum, ungmennum og sér um að halda utan um stöðu verkfæra og véla í samvinnu við verkefnisstjóra umhverfismála sem og að halda utan um leigu þeirra til íbúa.

Hæfniskröfur:

  • Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára og eldri.
  • Reynsla af störfum með börnum og ungmennum er æskileg.
  • Áhugi/reynsla af garðyrkjustörfum kostur.
  • Stundvísi og góð mæting skilyrði.
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum eru mikilvæg.
  • Hreint sakavottorð skilyrði.

Við leitum að aðilum sem geta verið ungmennum vinnuskólans góð fyrirmynd í dugnaði og ástundun.

 

Vinnutímabil: 1. júní – 31. ágúst. Vinnutímabil ungmennanna eru frá 4-8 vikum í júní-júlí. Daglegur vinnutími er 8 klst. frá kl. 8:00-12:00 og 12:30-16:00.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stéttarfélagsins Samstöðu.

 

Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2024.

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skila inn með rafrænum hætti. Umsóknareyðublað er að finna HÉR.

Var efnið á síðunni hjálplegt?