Opið samráð - úthlutunarlíkan

Opið samráð - úthlutunarlíkan

Úthlutunarlíkan fyrir grunnskóla í Húnaþingi vestra – opið samráð

Fræðsluráð Húnaþing vestra óskar eftir ábendingum við tillögu að úthlutunarlíkani fyrir grunnskóla sveitarfélagsins. Líkanið byggir á niðurstöðum úttektar á skólastarfi og er sett fram til opins samráðs við íbúa og skólasamfélagið.

Markmiðið er að skapa skýrari og gagnsærri ramma fyrir úthlutun kennslumagns og stuðla að jafnræði milli nemenda.

Mikilvægt er að undirstrika að hér er um að ræða grunnúthlutunarlíkan. Það byggir á almennum viðmiðum og nemendafjölda en tekur ekki til stuðnings eða sérkennslu, sem verður metin og úthlutað sérstaklega samkvæmt samræmdu mati.

Fræðsluráð leggur eftirfarandi viðmið til í kjölfar athugasemda og tillagna frá kennurum og nemendum um bekkja- og hópastærðir.

Lágmarksstærð bekkja: 10 nemendur
Lágmarksstærð hópa (list-, verk- og valgreinar): 10 nemendur
Lágmarksstærð íþróttahópa: 18 nemendur

Hámarksstærð bekkja:
1.–2. bekkur: 18
3.–4. bekkur: 20
5.–7. bekkur: 22
8.–10. bekkur: 24

Jaðaraukningarkvóti er notaður þegar nemendafjöldi hópa eða bekkja fer yfir viðmið. Þá er bætt við stöðugildi kennara til að mæta álagi vegna stærri hópa.

1 nemandi umfram → 0,1 stöðugildi
2 nemendur umfram → 0,2 stöðugildi
3 nemendur umfram → 0,3 stöðugildi
4 nemendur umfram → 0,4 stöðugildi

Ef tveir árgangar eru saman kemur jaðaraukningarkvóti frá og með 17. nemanda.

Fræðsluráð leggur áherslu á sveigjanleika í framkvæmd. Líkanið er viðmið og skólastjóri getur óskað eftir frávikum með rökstuðningi. Í mars skilar skólastjóri tillögum fyrir næsta skólaár til fræðsluráðs.

Við viljum heyra frá þér. Hvaða kosti eða ókosti sjá íbúar og skólasamfélagið við ofangreindar tillögur? Ábendingar eru vel þegnar.

Var efnið á síðunni hjálplegt?