Opið samráð um drög að reglum um samfélagsviðurkenningar

Opið samráð um drög að reglum um samfélagsviðurkenningar

Félagsmálaráð Húnaþings vestra kynnir til opins samráðs drög að reglum um veitingu samfélagsviðurkenninga í sveitarfélaginu.

Markmið viðurkenninganna er að heiðra einstaklinga og aðila sem hafa lagt samfélaginu sérstakt lið, stuðlað að jákvæðri þróun eða skarað fram úr á sínu sviði. Með viðurkenningunum er leitast við að efla samfélagsanda og hvetja til góðra verka.

Í drögunum er m.a. kveðið á um flokka viðurkenninga, rétt til tilnefninga og fyrirkomulag mats og veitingar.

Félagsmálaráð hvetur íbúa, félög og aðra áhugasama til að kynna sér drögin og senda inn ábendingar.

Drög að reglum um samfélagsviðurkenningar.

Ábendingar

Frestur til að skila ábendingum er til og með 15. maí 2026.

Félagsmálaráð Húnaþings vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?