Opið hús í Grunnskóla Húnaþings vestra

Opið hús í Grunnskóla Húnaþings vestra

Fyrr í haust var tekin í notkun hluti nýrrar viðbyggingar við Grunnskóla Húnaþings vestra. Í viðbyggingunni er mötuneyti, fjölnota salur, rými fyrir frístund, skrifstofur skólastjórnenda og Tónlistarskóli Húnaþings vestra.

Þriðjudaginn 14. desember frá kl. 16-18 verður opið hús og gefst íbúum og gestum tækifæri til að skoða nýbygginguna.

Verið velkomin.

Sveitarstjórn.

Var efnið á síðunni hjálplegt?