Opið hús á Hvammstangabraut 5

Opið hús á Hvammstangabraut 5

Opið hús verður að Hvammstangabraut 5. föstudaginn 27.11.2026 frá kl 13:00-15:00. Upplýsingar um eignina verða á staðnum ásamt þeim skýrslum sem gerðar hafa verið um húsnæðið. Þeim sem eru viðkvæmir fyrir myglu er bent á að nota grímu við heimsóknina. Ef heimilismenn gesta eru mjög viðkvæmir fyrir myglu þá er bent á að nota einnota galla eða föt sem fari í þvott áður en heim er komið. 

Eignin er seld í því ástandi sem hún er við sölu og eru áhugasamir kaupendur hvattir til að kynna sér ástand hennar vel áður en tilboð er gert. Tilboðum skal skilað í lokuðu umslagi á skrifstofu Húnaþings vestra eigi síðar en kl. 12:00 mánudaginn 30. nóvember 2026. Umslagið skal merkt „Hvammstangabraut 5 – kauptilboð“. Í tilboði skal koma fram hvernig kaupandi hyggst nýta húsið.

Húnaþing vestra áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Nánari upplýsingar veitir Ingimar Ingimarsson, eignir@hunathing.is

Var efnið á síðunni hjálplegt?