Öldungamót í blaki: Birnur sigra deild 6A

Öldungamót í blaki: Birnur sigra deild 6A

Dagana 25.-27. apríl fór fram Öldungamótið í blaki.  Að þessu sinni stóðu Þróttur og Keflavík saman að framkvæmd þess og fór keppnin fram í Reykjanesbæ.  Keppt var í samtals 15 deildum í kvennaflokki og í átta deildum í karlaflokki og voru keppendur alls um 1300.  Birnur fóru með tvö kvennalið en ekkert karlalið.  Birnur kepptu í deild 6A og Birnur Bombur kepptu í deild 8B.  Báðum liðum gekk vel.  Birnur sigruðu fimm leiki af sex og sigruðu deildina.   Fyrirkomulag deilda neðar en 4.deildar á Öldungamótinu er þannig að sigurlið í A armi deilda fara upp í B arm deildar fyrir ofan og liðið sem hafnar í 2.sæti fer upp i A arm deildarinnar fyrir ofan.  Öfugt er farið fyrir deildum sem spila í B armi deildarinnar.  Fara Birnur þar af leiðandi upp í deild 5B á næsta ári.  Birnur Bombur höfnuðu í fjórða sæti í sinni deild með því að sigra þrjá leiki af sex.  Liðin sem hafna í 4. sæti í sinni deild skipta um arm á næsta ári og spila Birnur Bombur því í deild 8A á næsta ári. 

Liðunum fylgdi Ástríður Halla Reynisdóttir.  Þakka keppendur Höllu kærlega fyrir hennar framlag og aðstoð á mótinu.  Halla er of ung til að geta keppt en keppendur þurfa að vera orðnir þrítugir til að öðlast keppnisrétt.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?