Okkur bráðvantar starfsfólk á fjölskyldusviði

Okkur bráðvantar starfsfólk á fjölskyldusviði

Okkur bráðvantar starfsfólk á fjölskyldusviði

Við erum að leita að starfsfólk sem getur unnið við liðsveislu á heimili fatlaðs einstaklings. Starfið felur í sér að aðstoða einstakling við athafnir daglegs lífs, aðallega við umönnun. Um er að ræða tímavinnu þar sem farið er nokkru sinnum á dag á heimilið í 1-2 tíma í senn.

Leitað er að ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa  með fötluðu fólki og eru góðir í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu og háttvísi, lipurð í mannlegum samskiptum og stundvísi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og hafa góða íslenskukunnáttu. Leggja þarf fram hreint sakavottorð.

Kaup og kjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisáætlun Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin.

Umsóknafrestur er til 18. júlí 2019. Umsóknir skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða rafrænt á henrike@hunathing.is.

Frekari upplýsingar veitir Henrike Wappler, yfirfélagsráðgjafi, í síma 455-2400 eða henrike@hunathing.is.

Var efnið á síðunni hjálplegt?