Nýr veitustjóri tekinn til starfa

Nýr veitustjóri tekinn til starfa

Benedikt Rafnsson tók við stöðu veitustjóra í Húnaþingi vestra 1 nóvember síðastliðinn af Þorsteinni Sigurjónssyni. 

Benedikt er með BSc. próf í véla- og orkutæknifræði sem og meistararéttindi í vélvirkjun.  Benedikt hefur starfað sem gæðastjóri hjá Set ehf. og sem sölu- og tækniráðgjafi hjá sama fyrirtæki og starfaði  hann um tíma sem framleiðslustjóri hjá RST Net.  Benedikt hefur haldgóða þekkingu á veitukerfum, hönnun veitna og góða þekkingu á veituefnum. 

Netfang Benedikts er benedikt@hunathing.is og

símanúmerið hans er  831-7100.

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?