Nýr sviðsstjóri umhverfis-, veitu og framkvæmdasviðs

Nýr sviðsstjóri umhverfis-, veitu og framkvæmdasviðs

Ingimar Ingimarsson hefur tekið við af Þorgils Magnússyni sem sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs sveitarfélagsins.

Ingimar er skrúðgarðyrkjufræðingur frá LBHI með BA í opinberri stjórnsýslu frá Háskólanum á Bifröst. Hann hefur komið víða við í gegnum árinn og þekkir vel til verkefna sveitarfélaga m.a. í gegnum störf sín sem sveitarstjórnarmaður bæði í Reykhólahrepp og Hafnarfirði. Hann hefur m.a. starfað sem kennari, garðyrkjuverktaki og umhverfis- og garðyrkjustjóri Seltjarnarnesbæjar. Þá hefur hann einnig stýrt hóteli og setið í fjölda nefnda á vegum sveitarfélaga s.s. framkvæmdarráði, þjónustu og þróunarráði, nefndar um staðardagsrká 21 hjá Hafnarfjarðarbæ og skipulags-, hafnar- og byggingarnefnd Reykhólahrepps ofl. Ingimar hefur undanfarin ár starfað sem sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar. Til gamans má geta að Ingimar er ættaður vestan megin úr Hrútafirði og er liðtækur sem organisti.

Á meðan við bjóðum Ingimar velkominn til starfa hjá sveitarfélaginu, þá þökkum við Þorgils fyrir hans framlag til sveitarfélagsins.

Var efnið á síðunni hjálplegt?