Nýr sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Nýr sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Elín Jóna Rósinberg hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs Húnaþings vestra.  Elín Jóna er með Cand.oceon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands auk þess sem hún leggur stund á MPA nám í opinberri stjórnsýslu við sama skóla.  Undanfarin 14 ár hefur Elín Jóna starfað sem fjármálastjóri og staðgengill forstöðumanns Fæðingarorlofssjóðs auk þess sem hún hefur borið ábyrgð á verkefnum fyrir fjármálasvið Vinnumálastofnunar, m.a. fjárhagsuppgjör erlendra verkefna og vinnu við innra eftirlit stofnunarinnar. Elín Jóna sat í sveitarstjórn Húnaþings vestra í 8 ár, þar af 3 ár sem formaður byggðarráðs og öðlaðist þar mikla innsýn inn í starfsemi og rekstur sveitarfélagsins. Þá starfaði Elín einnig sem deildarstjóri bókhaldsdeildar Forsvars ehf. um 6 ára skeið.

Elín Jóna kemur alfarið til starfa fyrir sveitarfélagið á haustdögum. Við bjóðum Elínu Jónu velkomna til starfa.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?